Aromastudio hefur flutt sig um set. Nú tek ég við nuddþegum á nýjum stað og enn eru lausir nuddtímar. Einnig er þar góð aðstaða fyrir aromatherapy greiningu og blöndun í kjölfarið fyrir þá sem hafa áhuga á að prufa ilmkjarnolíur til að hjálpa sér að ná betri heilsu. Áhugasamir geta pantað tíma í netfangið: kristinsjofnv@gmail.com
Göngujóga með Kristínu Sjöfn
Gönguhópurinn er ætlaður 60+ en yngri mega koma í fylgd með fullorðnum. Gönguhópurinn er lítill og við erum að njóta en ekki þjóta. Gengið er á laugardögum kl 10 og við erum að í 2-3 tíma. Göngusvæðið er náttúran í kringum Höfuðborgarsvæðið. Í byrjun hvers mánaðar sendi ég á hópinn áætlun þannig að fólk viti hvert er verið að ganga á hverjum laugardegi.
Enn eru laus pláss í þennan litla og krúttlega hóp.
Ef þú hefur áhuga á að ganga með okkur endilega sendu mér póst á netfangið: kristinsjofnv@gmail.com
MagnaVítamín
MagnaVítamín er tilraunaverkefni sem ég setti af stað s.l. haus. Tímarnir eru mjög í anda kennslu MagnaVita námsins sem ég útskrifaðist úr vorið 2024.
Gleði, styrkur, liðleiki og slökun allt í einum tíma með skólafélögunum. En nú er opið fyrir skráningu í þessa líflegu tíma fyrir alla sem hafa áhuga.
Hvenær: Miðvikudaga kl 14-15.30
Hvar: í sal NúnaCollective að Fiskislóð 75 , 101 Reykjavík
Tímarnir: Tímarnir byrja á upphitun öndunar- og liðleikaæfingum. Síðan taka við hefðbundnar jógaæfingar og við endum á 20 mín leiddri slökun. Komum úr tímanum endurnærð.
Skráning: Nauðsynlegt er að taka frá pláss í þessa tíma með því að skrá sig með nafni og kennitölu á netfangið kristinsjofnv@gmail.com
Mánaðargjaldið er 12.000,- og er innheimt með greiðsluseðli mánaðarlega.
Aromatherapyskólinn
Næsta haust mun tveggja ára námslota hjá Aromatherapyskólanum byrja. Þessi námslota er í fjarnámi og ættu nemar á landsbyggðinni að fagna því. Námið er einstakt og eins og það gerist best í Aromatherapyskólum erlendis. Allt nám á íslensku. Skráning stendur yfir núna, góður afsláttur og bónusar fyrir þá sem skrá sig fyrir 1. september 2024
Skólinn selur ekki ilmkjarnaolíur né aðrar vörur..einungis þekkingu.
Nánari upplýsingar : http://www.aromatherapyskolinn.is
Sjálfshjálp við kvefpestum
Aromatherapyskólinn
Sjálfshjálp með Aromatherapy- Kvefpestir.
Námskeiðið verður haldið þann 11. febrúar 2023
að Hamrahlíð 17, Hús Blindrafélagsins, 105 Reykjavík.
Námskeiðið er 2 tímar frá 11-13 Einnig er hægt að mæta á námskeiðið í gegnum Zoom
Verð aðeins 8000 kr innifalið í verði eru námsgögn með uppskriftum og aromatherapy blanda við kvefi.
Kynntar verða 5 ilmkjarnaolíur sem geta hjálpað gegn kvefi.
Kennt verður að blanda úr þessum olíum og fá nemendur með sér eina blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðinu.
Skráning stendur yfir núna: Skrá mig
Verkir í stoðkerfinu
Sjálfshjálp með Aromatherapy- Verkir í stoðkerfi.
Námskeiðið verður haldið þann 7. apríl 2022
að Hamrahlíð 17, Hús Blindrafélagsins, 105 Reykjavík.
Námskeiðið er 2 tímar frá 19-21
Verð aðeins 8000 kr innifalið í verði eru námsgögn með uppskriftum og aromatherapy blanda við verkjum.
Kynntar verða 5 ilmkjarnaolíur sem allar hafa verkjastillandi eiginleika.
Kennt verður að blanda út þessum olíum og fá nemendur með sér eina blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðinu.
Skráning stendur yfir: skrá mig
Sjálfshjálp við höfuðverkjum
Sjálfshjálp með Aromatherapy- Höfuðverkir
Námskeiðið verður haldið þann 17. mars 2022
að Hamrahlíð 17, Hús Blindrafélagsins, 105 Reykjavík.
Námskeiðið er 2 tímar frá 19-21
Verð aðeins 8000 kr innifalið í verði eru námsgögn með uppskriftum og aromatherapy blanda við höfuðverkjum.
Kynntar verða 5 ilmkjarnaolíur sem allar hafa verkjastillandi eiginleika.
Kennt verður að blanda út þessum olíum og fá nemendur með sér eina blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðinu.
Skráning stendur yfir: skrá mig
HeimaSpa nýtt námskeið hjá Aromatherapyskólanum
Annað námskeiðið í röðinni : Sjálfshjálp með aromatherapy verður haldið 24. febrúar 2022 hjá Aromatherapyskólanum. Í þetta sinn munum við læra um hvaða kjarnaolíur eru góðar fyrir húðina og við munum læra að búa til okkar eigin spavörur. Farið verður yfir öryggisatriði varðandi notkun á kjarnaolíum og kennt verður að blanda áhrifaríkar blöndur til að lina verki. Nemendur fá með sér heim námsgögn með uppskriftum og blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðiu. Skráning á námskeiðið er hér
Kvíði
Sjálfshjálp með Aromatherapy- Kvíði.
Námskeiðið verður haldið þann 18. nóvemberl 2021
að Hamrahlíð 17, Hús Blindrafélagsins, 105 Reykjavík.
Námskeiðið er 2 tímar frá 19-21
Verð aðeins 7000 kr innifalið í verði eru námsgögn með uppskriftum og aromatherapy blanda sem hefur áhrif á kvíða.
Kynntar verða 5 ilmkjarnaolíur sem allar hafa kvíðastillandi áhrif.
Kennt verður að blanda úr þessum olíum og fá nemendur með sér eina blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðinu.
Skráning stendur yfir núna: Skrá mig
Jógaflæði á föstudögum
Dásamlegir flæðandi jógatímar á föstudögum byrja aftur þann 6. september
Markmiðið er að ná slökun og jafnvægi eftir vinnuvikuna.
Í jógatímanum eru hefðbundnar jógastöður ( asanas) sem hægt er að aðlaga að getu hvers og eins. Öndunaræfingar. Mjög góð leidd slökun (yoga nidra) í 30 mín. í enda hvers tíma.
Takmarkaður fjöldi í tíma og nokkur pláss laus.
Tímarnir eru kl 16.30 – 18.00 í Yogatma, Skipholti 35, 105 Reykjavík
Áhugasamir sendi tölvupóst á : kristinsjofn@simnet.is
