Brautargengi

Ég smellti mér á námskeið hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands- Brautargengi -fyrir konur með frábærar viðskiptahugmyndir…..ég mæli með því fyrir allar konur með góða hugmynd. Frábærir kennarar og maður mótar hugmyndina sína og sér hvort það er mögulegt að koma henni í framkvæmd.

Skýrteinið komið í hús

Svefn

Sjálfshjálp með Aromatherapy- Svefn.
Námskeiðið verður haldið þann 21. mars 2019
að Hamrahlíð 17, Hús Blindrafélagsins, 105 Reykjavík.
Námskeiðið er 2 tímar frá 17-19
Verð aðeins 7000 kr innifalið í verði eru námsgögn með uppskriftum og aromatherapy blanda við bættum svefni.

Kynntar verða 5 ilmkjarnaolíur sem allar hafa áhrif á bættan svefn.
Kennt verður að blanda úr þessum olíum og fá nemendur með sér eina blöndu sem þeir blanda sjálfir á námskeiðinu.

Skráninga á: kristinsjofn@simnet.is

Sjálfshjálp með aromatherapy

Að verjast kvefpestum. Nú er farið að hausta með tilheyrandi veðrabreytingum. Þá erum við oft viðkvæmari fyrir því að fá kvef. Hægt er að nota aromatherpy -ilmkjarnaolíur á einfaldan hátt til að verja okkur og fjölskyldu okkar fyrir umgangspestum.

Námskeið fimmudaginn 27. september 2018 kl 17-19. Verð aðeins 6000,-

Skráning : kristinsjofn@simnet.is

 

Nudd nudd nudd

Aromatherapynudd með leiddri slökunarhugleiðslu í lokin.  Svæðanudd á fótum, heilnudd (sogæðanudd) og slökunarhugleiðsla 90 mínútna sæla. Skráning í nuddtíma í netfangið:  kristinsjofn@simnet.is

 

Slökun og hugleiðsla með Kristínu Sjöfn

Þann 1. maí 2018 gaf Kristín út geisladiskinn Slökun og hugleiðsla með Kristínu Sjöfn.  Hann inniheldur þrjár slökunaræfingar og eina hugleiðsluæfingu og er ætlaður fyrir bæði byrjendur og lengra komna.